
Svona
"heyja" menn í Noregi en í dag.
Kynningarfundur
Gerð útistæða og gæði á
rúlluplasti
Þann 17. apríl n.k. verður
haldinn kynningarfundur á Hótel Flúðum kl. 13:00 til kl. 16:00.
Sérfræðingar frá Eric Storm A/S í Danmörku og fulltrúi Frjó ehf.
verða á ferð um landið til að hitta bændur til ráðgjafar á verkun
heyja í útistæðum og verkun í rúllu- og heybagga ásamt því að kynna
framleiðsluvörur fyrirtækjanna.
Eric Storm er leiðandi fyrirtæki í þjónustu og ráðgjöf á
rekstarvörum fyrir bændur í Danmörku og hefur viðað að sér mikilli
þekkingu í verkun heyja í útistæðum.
Balensil er stór aðili á markaði fyrir heyrúlluplast í Evrópu.
Heyrúlluplastið er framleitt í nýrri vélasamstæðu sem mun einhver
sú fullkomnasta sem þekkist og er plastið sérhannað fyrir íslenskar
aðstæður.
Frjó ehf er dótturfélag Sölufélags garðyrkjumanna og 20 bænda
víðsvegar um landið og sérhæfir sig m.a. í sölu á rekstrarvörum og
ráðgjöf í ræktun
fyrir bændur.
Fyrirlestrar verða:
Kynnig á Frjó ehf. og þjónustu, Erlendur Pálsson búrekstarsviði
Frjó
Gróffóðurverkun - hvert skal
stefna?, Unnsteinn Snorri Snorrason, MS - nemandi við
Landbúnaðarháskóla Íslands og starfsmaður Bændasamtaka
Íslands
Gryfjugerð, Niels Eric Hansen frá
Eric Storm
Heyrúlluplast, Nicole Varagnat
frá Balensil
Meðfram fyrirlestrum og að þeim
loknum verður spurningum svarað ásamt umræðum eftir
fundinn.
Fundirnir verða á eftirfarandi
stöðum:
16. apríl í Ásgarði á Hvanneyri
17. apríl á Hótel Flúðum
18. apríl á Grímsstöðum í Eyjafirði
19. apríl á hótel Héraði á Egilsstöðum
Allir fundirnir hefjast k.l 13:00
og standa til kl. 16:00. (heimild bssl)